Myndir úr leikjum, mótum og viðburðum.
Myndir sem ég hef tekið undanfarið — af leikjum, liðum og viðburðum.
Ég mæti á leiki og næ hasarnum — skotum, mörkum, fögnuði og öllu þar á milli.
Hópmyndir og andlitsmyndir af leikmönnum, fyrir lið, félög eða fyrirtæki.
Ég mæti á mót og keppnir og tek myndir yfir daginn, ekki bara úrslitaleikinn.
Myndataka af leikmönnum fyrir félög, leikmenn, samfélagsmiðla eða annað efni.
Ég heiti Valþór Pétursson og er ljósmyndari frá Njarðvík.
Ég er að stíga mín fyrstu skref í ljósmyndun og hef sérstaklega mikinn áhuga á íþrótta- og viðburðaljósmyndun.
Það sem mér finnst skemmtilegast við ljósmyndun er að ná augnablikunum sem gerast á sekúndubroti. Í íþróttum getur allt gerst á örskotsstundu – skotið, markið, fögnuðurinn, spennan eða tilfinningarnar eftir leik. Það eru augnablikin sem ég vil ná.
Ég hef mikinn áhuga á íþróttum og hef tengsl við íþróttastarf í Njarðvík. Þar hef ég fengið tækifæri til að vera nálægt leiknum og séð hversu mikið góðar myndir geta þýtt fyrir leikmenn, lið, félög og fólkið í kringum þau.
Ég hef einnig gaman af því að mynda viðburði og annað þar sem hægt er að fanga stemninguna, fólkið og litlu augnablikin sem gera daginn eftirminnilegan.
VALTHR er verkefni sem ég er að byggja upp frá grunni. Ég er enn að læra, prófa mig áfram og þróa minn eigin stíl – og það er einmitt það sem mér finnst skemmtilegast við ljósmyndun.
— Valþór
Sendu mér smá upplýsingar og ég hef samband.